Hvað er sprautumeðferð
Þegar um minniháttar æðahnúta eða æðaslit er að ræða má meðhöndla þá með því að sprauta efni inn í æðarnar sem lokar þeim. Þetta er iðulega gert eitt og sér eða í kjölfar aðgerða með laser. Vanalega þá >3 mán frá aðgerð.
Undirbúningur fyrir meðferð:
Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.
Ekki þarf að fasta.
Verkjalyf:
1 klst fyrir aðgerðina áttu að taka verkjalyfið Panodil eða Paratabs 500 mg. Ef þú ert undir 70 kg í þyngd þá 2 töflur en annars 3 töflur. Þeir sem hafa lifrarsjúkdóma eiga ekki að taka þetta lyf nema að höfðu samráði við lækni.
Sturta að morgni meðferðardags. Þvottur með venjulegri sápu. Ekki vax eða rakstur viku fyrir meðferð.
Engin krem eða mýkjandi efni á húð á meðferðarstað á aðgerðardaginn.
Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum er nauðsynlegt að það komi fram fyrir meðferðina.
Meðferðin:
Fer fram á Skurðstofunni ehf. Notað er lyfið polidocanol (Aetoxysclerol®). Mismunandi styrkleikar eru notaðir háð grófleika þeirra æða sem loka skal (0,5% eða 1,0% ) sem froða eða í vökvaformi. Lyfið lokar æðunum sem mynda æðahnúta eða æðaslit sem breytast í örvef. Meðferðin tekur allt 15- 30 mín í hvert skipti. Ekki er hægt að deyfa. Notuð er hárfín nál sem stungið er í húðina og lyfinu sprautað beint í fæðandi æðar að æðasliti/æðahnútum iðulega með aðstoð útfjólublás ljóss. Viss óþægindi geta verið þessu samfara og þá helst sviði sem er skammvinnur.
Það magn sem hægt er að sprauta í einni meðferð er takmarkað í hvert sinn. Iðulega þarf því að endurtaka meðferðina í nokkur skipti á >6 vikna fresti þar til fullnægjandi árangri er náð.
Umbúðir:
Settir eru teygjuvafningar á fót sem ráðlegt er að halda óhreyfðum þar til daginn eftir. Þrýstingurinn minnkar blóðflæðið um meðferðarsvæðið, bætir árangur meðferðar og minnkar líkur á fylgikvillum s.s. mari og litabreytingum í húð.
Hreyfing:
Þú getur farið allra þinna ferða en forðast ber þó mikið álag fyrsta sólahringinn á eftir s.s. líkamsrækt.
Árangur:
Langtímaárangur þessarar meðferðar er afar einstaklingsbundin en aldrei alger og iðulega þarf að endurtaka sprautumeðferðina. Það er þá gert á minnst 6 vikna fresti eins og fyrr er getið. Sjúklingar verða að hafa hæfilegar og raunhæfar væntingar um útlitslegan árangur háð þeim takmörkunum sem meðferðin býður upp á og einnig umfangi sjúkdómsins hjá hverjum og einum. Útlitslegur árangur verður aldrei alger.
Fylgikvillar:
Eðlilegt er að húðin verði marin fyrst á eftir þar sem stungið var. Aukaverkanir af sprautumeðferðinni eru sjaldgæfar og eru helstar; hitatilfinning í húð, roði og kláði. Öðrum aukaverkunum svo sem ofnæmi fyrir lyfinu, æðabólgum, viðvarandi litarbreytingum, sýkingum eða drepi í húð hefur verið lýst í undantekningartilfellum.
Vinna:
Ekki þarf að taka sér leyfi frá vinnu eftir meðferðina.
Forföll:
Vinsamlegast tilkynnið forföll í síma 590-9213 hið fyrsta.
Frávik geta komið upp varðandi tímasetningu fyrirhugaðar meðferðar.
Til að forðast óþarfa bið/tafir verður haft samband við þig símleiðis frá Skurðstofunni ehf sama dag og meðferðin er fyrirhuguð um nánari tímasetningu úr s. 590-9213
PDF-síður
Síða 1 í PDF
Síða 2 í PDF