Undirbúningur:
- Fasta 6 klst. fyrir aðgerð. Vanalega frá miðnætti fyrir aðgerð. (Ekki borða fasta fæðu eða drekka vökva).
- Verkjalyf: 1 klst fyrir aðgerðina áttu að taka verkjalyfið Panodil, Parasetamol eða Paratabs 500 mg. Ef þú ert undir 70 kg í þyngd þá 2 töflur en annars 3 töflur. Þeir sem hafa lifrarsjúkdóma eiga ekki að taka þetta lyf nema að höfðu samráði við lækni.
- Sturta kvöldið fyrir aðgerð og einnig að morgni aðgerðardags. Þvottur með venjulegri sápu.
- Af sýkingarvarástæðum á ekki raka aðgerðarsvæðið eða nota háreyðingakrem/vax á aðgerðarsvæðið viku fyrir aðgerðina. Ef raka þarf hár af aðgerðarsvæði er það gert í upphafi aðgerðar af starfsfólki á skurðstofu.
- Engin krem eða mýkjandi efni á húð á að a við aðgerðarsvæðið á aðgerðardaginn.
- Forðast notkun blóðþynnandi lyfja s.s. acetylsalesylsýru (magnýl, kódimagnýl, hjartamagnýl ofl.) og allra bólgueyðandi lyfja (t.d. Ibúfen, Ibumetin, Naprox, Voltaren, Vóstar) a.m.k. 5 daga fyrir aðgerðina. Lýsi og Omega fitusýrur eru blóðþynnandi og ber að hætta neyslu þeirra viku fyrir aðgerð. Þeir sem nota lyfið Warfarin (Kóvar/Waran/Dicumarol) þurfa að öllu jöfnu að hætta töku þess 6 dögum fyrir aðgerð eða fá sérstakar leiðbeiningar þar um. Sama gildir um lyfin; Grepid, Clopidrogel og Plavix sem eru blóðþynnandi. Þeir sjúklingar sem taka blóðþrýstingslækkandi lyf og/eða hjartalyf er bent á að taka þau að morgni aðgerðardags með sopa af vatni. Notkun getnaðarvarnar– eða tíðahvarfapillu þarf ekki að hætta. Þeir sem hafa sykursýki og nota insúlin þurfa að ræða við svæfingalækninn nokkrum dögum fyrir aðgerðina (sími 590 9213).
- Á Skurðstofunni eru læst hólf fyrir verðmæti/síma ofl. Skurðstofan ehf ábyrgist ekki tap eða mögulegan skaða á persónulegum munum. Notkun á snjallsímum á vöknun er óheimil. Öll upptaka/dreifing á hljóð og myndefni af skurðstofu sömuleiðis.
- Við komu á skurðstofuna hittir þú skurð- og svæfingalækni sem skýra megin þætti aðgerðarinnar og ráðleggja um eftirmeðferð. Þú færðu slopp og einnota nærbuxur til að fara í og teiknað er á húð. Allir sjúklingar verða að undirrita upplýst samþykki fyrir aðgerðina.
- Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum, plástri, sóttreinsiefnum ofl. er nauðsynlegt að það komi fram fyrir aðgerðina.
- Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða fyrir aðgerðina að mestu fyrir þá sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Greiðsla innheimtist fyrir aðgerðina. Greiða má með greiðslu- eða kreditkorti en ekki seðlum.
Eftir aðgerðina: Langflestar aðgerðirnar eru gerðar í svæfingu eða staðdeyfingu með slakandi lyfi sem gefið er samtímis í æð. Að lokinni aðgerð færðu að jafna þig á vöknunardeildinni í 1-2 klst. og þegar þú treystir þér til og svæfingalæknir gefur leyfi til getur þú farið heim. Einhver verður að sækja þig. Sjúklingar teljast ekki ökuhæfir fyrr en daginn eftir.
Verkir: Fyrstu dagana má búast við óþægindum í aðgerðarsvæðinu. Ráðlegt er að nota verkjalyf ef þess er þörf og fást þau án lyfseðils í apótekum (Paracetamól/Panodil 500 mg, 2 tbl fjórum sinnum daglega) eða með lyfseðli (Parkódin).
Skurðsár: Skurðsár er stundum skilið eftir opið og látið gróa upp. Í slíkum tilfellum þarf að skipta reglulega á sárinu. Síðar skola það með vatni og sápu reglulega (í sturtu). Hægt er að fá aðstoð á heilsugæslustöð með skiptingar á sárinu þegar frá líður. Það er þó nauðsynlegt að mæta til eftirlits hjá skurðlækni til skiptinga í fyrstu eftir aðgerð og síðar á viku eða tveggja vikna fresti til að fylgjast með að sárið grói á viðeigandi hátt.
Fylgikvillar: Blæðing í skurðsárið og sýkingar geta átt sér stað. Við blæðingu kemur venjulega verkur og sárið bungar út og þegar frá líður kemur út mar í og fyrir neðan sárið. Þegar sárið er saumað er hætta á sýkingu nokkur. Einkenni sýkingar er verkur og eymsli í sárinu og hiti. Ef grunur er um stærri blæðingu eða sýkingu skaltu hafa samband við lækni. Hafa ber í huga að þessi sjúkdómur er með nokkuð háa endurkomutíðni. Því er aldrei hægt að útiloka að viðkomandi muni þurfa að gangast undir meðferð vegna sjúkdómsins á ný síðar á lífsleiðinni.
Vinna: Fjarvistir frá vinnu eru einstaklingsbundnar, háðar umfangi aðgerðar og starfi hvers og eins. Ekki er óeðlilegt að vera frá vinnu frá einni til þriggja vikna eftir aðgerðina og lengur í einstaka tilfellum. Vottorð vegna vinnu eru gefin við endurkomu.
Stefán E. Matthíasson dr. med.
Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma