Fasta: Ekki drekka vökva eða neyta fastra fæðu 6 klst. fyrir aðgerðina.
Verkjalyf:1 klst fyrir aðgerðina áttu að taka verkjalyfið Panodil, Parasetamol eða Paratabs 500 mg. Ef þú ert undir 70 kg í þyngd þá 2 töflur en annars 3 töflur.
Farðu í sturtu kvöldið fyrir aðgerð fyrir háttinn og einnig að morgni aðgerðardags. Þvottur með venjulegri sápu. Ekki krem eða mýkjandi efni á húð á aðgerðardaginn. Komdu ekki í þröngum buxum í aðgerðina vegna umbúða/teygjusokka sem notaðar eru eftiraðgerðina.
Æskilegt að forðast notkun blóðþynnandi lyfja s.s. magnýl, kódimagnýl, hjartamagnýl ofl.) og bólgueyðandi lyfja (NSAID lyfja) (t.d. Ibúfen, Ibumetin, Naprox, Voltaren, Vóstar…..) 4-5 daga fyrir aðgerðina. Þeir sem nota Warfarin (Kóvar/Dicumarol), Xarelto, Pradaxa, Eliquis eða sambærileg blóðþynnandi lyf fá sérstakar leiðbeiningar þar um. Sama gildir um lyfin; Grepid, Clopidrogel og Plavix sem eru blóðþynnandi. Þeir sjúklingar sem taka blóðþrýstingslækkandilyf og/eða hjartalyf er bent á að taka þau að morgni aðgerðardags með sopa af vatni. Notkun getnaðarvarnar– eðatíðahvarfapillu þarf ekki að hætta. Þeir sem hafa sykursýki og nota insúlin þurfa að ræða við svæfingalækninn nokkrum dögum fyrir aðgerðina (sími 590 9213).
Á Skurðstofunni eru lítil og læst hólf fyrir verðmæti/síma ofl. Skurðstofan ehf ábyrgist ekki tap eða mögulegan skaða á persónulegum munum. Notkun á snjallsímum á vöknun er óheimil. Öll upptaka/dreifing á hljóð og myndefni af skurðstofu sömuleiðis.
Við komu á skurðstofuna hittir þú skurð- og svæfingalækni auk starfsfólk skurðstofunnar. Þú færðu slopp til að fara í og einnota nærbuxur. Teiknað er á fætur og þeir ómaðir. Allir sjúklingar verða að undirritaupplýst samþykki fyrir aðgerðina.
Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum, plástri, sótthreinsiefnum ofl. er nauðsynlegt að það komi fram fyrir aðgerðina.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða fyrir aðgerðina að mestu fyrir þá sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Greiðsla innheimtist fyrir aðgerðina. Greiða má með greiðslu- eða kreditkorti en ekki seðlum.
Eftir aðgerðina: Aðgerðin er er gerð í þandeyfingu. Þetta er sérstök deyfingaaðferð (e. tumescent deyfing) og fer þannig fram að með hárfínni nál er aðgerðarsvæðið deyft með kældri deyfingarlausn. Eina sem sjúklingar finna fyrir eru stungur og þrýstingstilfinning. Þá er farið inn með hulsu í æðina. Þar í gegnum er síðan þræddur einnota laserleiðari. Þessi leiðari hitar innra byrði æðarnar upp í >100°C og lokar henni. Að auki eru minni greinar frá stofnæðunum fjarlægðar gegnum nálarstungugöt. Aðgerðirnar eru gerðar með slæfingarlyfjum í æð svipað og við magaspeglun. Að lokinni aðgerð færðu að jafna þig á vöknun í ½-1 klst eða þar til þú ert ferðarfær. Sjúklingar teljast ekki ökufærir fyrr en daginn eftir. Ráðlegt er að sjúklingar dvelji ekki einir fyrst eftir heimkomu. Verkir: Fyrstu dagana má búast við minniháttar óþægindum í aðgerðarsvæðinu. Ráðlegt er að nota verkjalyf ef þess er þörf og fást þau án lyfseðils í apótekum (Paratabs/Panodil 500 mg, 2 tbl allt að fjórum sinnum/dag) eða Parkodin gegn lyfseðli. Umbúðir:Við aðgerðina er fóturinn settur í teygjusokk. Þar utan á er teygjubindi sem má fjarlægja eftir 48 klst og fleygja. Þá má einnig fjarlægja teygjusokkinn og fara í sturtu en fara svo í hann á ný. Umbúðir undir teygjusokknum má fjarlægja samtímis fyrir sturtuna og fleygja. Notast á við sokkinn í framhaldinu í 5-7 sólahringa eftir aðgerð. Dag og nótt. Sokkurinn minnkar verki, mar og kemur í veg fyrir bjúgsöfnun. Kláði getur fylgt langvarandi notkun umbúða. Sumum gagnast að taka algeng ofnæmislyf sem fást án lyfseðils til að stilla kláðann. Síðan er ráðlegt er að sjúklingar kaupi sér “flugsokka” í réttri stærð í apóteki, sem ná upp að hné, og noti frá 5-7. degi eftir aðgerð á dagtíma í 1-3 vikur eftir það. Hreyfing: Hafa almennt hægt um þig fyrstu 1-2 dagana eftir aðgerð. En farið reglulegar göngur og gerið fótaæfingar með því að hreyfa upp og niður um ökklaliðinn; “pumpuæfingar”. Þetta kemur í veg fyrir bjúgsöfnun á fætinum og minnkar verki. Sund og leikfimi eftir 10 daga eða þegar stungusár eru alveg lokuð eða gróin. Fylgikvillar: Eðlilegt er að húðin verði marin á stungustað. Einnig að þykkildi/strengur myndist undir húðinni fyrst í stað þar sem æðahnútarnir voru. Nota má Hirudoid krem eftir 5-7 daga sem fæst án lyfseðils til að minnka marið. Það er borið þunnt á marin svæði 2-3 á dag þar til mar hverfur. Blæðingar og sýkingar geta átt sér stað. Við sýkingu er óeðlilega mikill verkur í sárum og e.t.v. hiti. Við blæðingu eða grun um sýkingu skaltu hafa samband við lækni. Einstaka sinnum geta orðið langvarandi litabreytingar á húðinni (e. staining) og einnig tilfinningaskerðing/tap í húð. Blóðtappa eftir aðgerð hefur verið lýst en er afar fátítt. Í lok aðgerðarinnar fá allir blóðþynnandi sprautu sem forvörn. Umbúðir geta valdið óþoli eða í versta falli blöðrumyndun. Í slíkum tilfellum er ráðlegt að fjarlægja þær eða breyta um staðsetningu.
Eftirmeðferð: Iðulega er síðar (>3 mán frá aðgerð) sprautað í minni æðahnúta og æðaslit. Til þessa er notað lyfið polidocanol (Aetoxysclerol) eitt sér eða sem froða. Lyfið lokar þessum æðum. Langtímaárangur þessarar meðferðar er einstaklingsbundin en aldrei alger og iðulega þarf að endurtaka sprautumeðferðina.
Árangur: Langtímaárangur aðgerðarinnar byggir m.a. umfangi og eðli sjúkdómsins og nákvæmu mati fyrir aðgerð og ómskoðun. Reynt er að gera varanlega aðgerð en hafa ber í huga að um krónískan sjúkdóm er að ræða og að grunn orsök hans er lítt þekkt og því aldrei hægt að útiloka að æðahnútar geti myndast á ný eða á öðrum stöðum með tíð og tíma. Endurkoma æðahnúta eftir bestu mögulegu meðferð er algeng þegar til lengri tíma er litið.
Vinna: Fjarvistir frá vinnu eru einstaklingsbundnar, háðar umfangi aðgerðar og starfi hvers og eins. Ekki er óeðlilegt að vera frá vinnu í nokkra daga eftir aðgerðina og lengur í undantekningartilfellum. Þú mátt hefja störf þegar þú þess óskar án þess að árangur aðgerðarinnar sé í hættu. Vottorð vegna vinnu eru gefin út við endurkomu.
Stefán E. Matthíasson dr. med. Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma
Þessi vefsíða notar fótspor (e. cookies)
Þessi vefsíða notar fótspor (e. cookies) til að auðvelda þér að vafra um vefinn, geyma upplýsingar um stillingar o.fl. Með því að nota vefinn samþykkir þú stefnu okkar um notkun fótspora.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
Þessi vafrakaka er sett af GDPR Cookie Consent viðbótinni. Vafrakökur eru notaðar til að geyma samþykki notanda fyrir vafrakökum í flokknum „Nauðsynlegt“.
gátreitur-laga-um-kökur-virkur
11 months
Fótsporið er stillt af GDPR vafrakökusamþykki til að skrá samþykki notanda fyrir vafrakökum í flokknum „virkt“.
skoðuð_kökustefnu
11 months
Kakan er stillt af GDPR Cookie Consent viðbótinni og er notað til að geyma hvort notandi hafi samþykkt notkun á vafrakökum eða ekki. Það geymir engar persónulegar upplýsingar.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.