Fyrir aðgerð
Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.
Síða 2 í PDF · síða 1 úr upprunaskjali
Stefán E. Matthíasson dr. med Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma Lágmúla 5, www.laekning.is 108-Reykjavík, Sími: 590 9200, 1. hæð til vinstri,Sími: 553 20 40
Æðahnútaaðgerð -Skurðaðgerð Æðahnútar og æðaslit - Fræðsluefni : Teygjusokkar - Fræðsluefni : Eftir að heim er komið úr aðgerð -
Leiðbeiningar Undirbúningur fyrir aðgerð:
- Fasta 6 klst fyrir aðgerð (ekki borða fasta fæðu eða drekka vökva).
- Verkjalyf: 1 klst fyrir aðgerðina á að taka verkjalyfið Panodil eða Paratabs 500 mg. Ef þú ert undir 70 kg þá 2 töflur en annars 3 töflur. Þeir sem hafa lifrarsjúkdóma eiga ekki að taka þetta lyf nema að höfðu samráði við lækni.
- Sturta kvöldið fyrir aðgerð og einnig að morgni aðgerðardags. Þvottur með venjulegri sápu.
- Ekki að raka ganglimi eða nára eða nota háreyðingakrem/vax viku fyrir aðgerðina. Ef fjarlægja þarf hár er það gert í upphafi aðgerðar af starfsfólki á skurðstofu. Ekki nota krem eða mýkjandi efni á húð ganglima á aðgerðardaginn.
- Forðast notkun blóðþynnandi lyfja s.s. magnýl, kódimagnýl, hjartamagnýl ofl. og bólgueyðandi lyfja t.d. Ibúfen, Ibumetin, Indocit, Naprox, Voltaren, Vóstar 5-7 daga fyrir aðgerðina. Þeir sem nota lyfið Kóvar (Waran/Dicumarol) þurfa að öllu jöfnu að hætta töku þess 5 dögum fyrir aðgerð eða fá sérstakar leiðbeiningar þar um. Lýsi og Omega fitusýrur eru blóðþynnandi og því æskilegt að hætta neyslu þeirra viku fyrir aðgerð.
- Þeir sjúklingar sem taka blóðþrýstingslækkandi lyf og/eða hjartalyf er bent á að taka þau að morgni aðgerðardags með sopa af vatni. Notkun getnaðarvarnar- eða tíðahvarfapillu þarf ekki að hætta. Þeir sem hafa sykursýki og nota insúlin þurfa að ræða við svæfingalækninn nokkrum dögum fyrir aðgerðina (sími 553-2040).
- Skilja verðmæti eftir heima. Skurðstofan ehf. ábyrgist ekki tap eða mögulegan skaða á persónulegum munum
- Við komu á skurðstofuna hittir þú skurð- og svæfingalækni. Þú færðu slopp til að fara í og teiknað er á fætur. Allir sjúklingar verða að undirrita upplýst samþykki.
- Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum, plástri, joði ofl. er nauðsynlegt að það komi fram fyrir aðgerðina.
- Greiðslur: Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taka þátt í kostnaði fyrir aðgerðina fyrir þá sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Greiðsluþátttaka skv. reglugerð þar um og er lægri fyrir öryrkja/ellilífeyrisþega og handhafa afsláttarkorts SÍ. Greiðsla innheimtist fyrir aðgerðina. Greiða má með greiðslu- eða kreditkorti. Sjá nánar á www.sjukra.is. Eftir aðgerðina: Æðahnútaaðgerðir eru gerðar í þandeyfingu með einhverju formi svæfingar eða slæfingar. Að lokinni aðgerð færðu að jafna þig á vöknunardeildinni í 1-2 klst. þar til þú ert heimferðarfær. Sjúklingar teljast ekki ökuhæfir fyrr en daginn eftir. Ráðlegt er að sjúklingar dvelji ekki einir fyrst eftir heimkomu. Verkir: Fyrstu dagana má búast við óþægindum í aðgerðarsvæðinu. Ráðlegt er að nota verkjalyf ef þess er þörf og fást þau án lyfseðils í apótekum (Paratabs/Panodil 500 mg, 2 tbl allt að fjórum sinnum/dag) eða með lyfseðli (Parkódin 1-2 tbl 3-4 sinnum/dag). Umbúðir: Eftir aðgerðina er fóturinn færður í teygjusokk. Þar utan á er teygjubindi sem má fjarlægja eftir 24 klst. Undir sokkinum eru umbúðarpúðar sem má fjarlægja eftir 2 sólahringa og fara í sturtu. Ekki taka plástra af sárum samtímis sem eru undir umbúðarpúðunum og loka sárum.Teygjusokkinn ber að hafa í 5-7 daga. Sokkurinn minnkar verki, mar og kemur í veg fyrir bjúgsöfnun. Kláði getur fylgt langvarandi notkun umbúða. Sumum gagnast að taka algeng ofnæmislyf sem fást án lyfseðils til að stilla kláðann. Ráðlegt er að sjúklingar kaupi sér “flugsokka” í apóteki, sem ná upp að hné, og noti á dagtíma í 2-3 vikur frá 5-7 degi eftir aðgerð. Hendið ekki aðgerðasokknum. Hreyfing: Hafa hægt um þig fyrstu 1-2 dagana eftir aðgerð. Farið í göngur nokkrum sinnum á dag. Sumum finnst betra að hafa hærra undir fótum fyrstu næturnar. Gerðu fótaæfingar reglulega með því að hreyfa um ökklaliðinn; “pumpuæfingar”. Þetta kemur í veg fyrir bjúgsöfnun á fætinum og minnkar verki. Fylgikvillar: Eðlilegt er að húðin verði marin í einhverjar vikur. Einnig að þykkildi myndist undir húðinni fyrst í stað þar sem æðahnútarnir voru. Nota má Hirudoid® krem sem fæst án lyfseðils til að minnka marið eftir endurkomu, 2-3 var á dag. Blæðingar og sýkingar geta átt sér stað. Við sýkingu er óeðlilega mikill verkur og eymsli í sárum og e.t.v. hiti. Ef blæðir úr sári eftir æðahnútaaðgerð geturðu lagst út af með hátt undir fæti og þrýst á blæðingarstaðinn með hreinni handþurrku. Við blæðingu eða grun um sýkingu skaltu hafa samband við lækni. Einstaka sinnum geta orðið viðvarandi litabreytingar á húðinni og einnig tilfinningaskerðing/tap í húðinni. Blóðsegamyndun/tappi getur átt sér stað. Plástrar sem halda umbúðum, sér í lagi teygjusokkum, geta valdið óþoli eða í versta falli blöðrumyndun. Í slíkum tilfellum er ráðlegt að fjarlægja plástra eða breyta um staðsetningu. Iðulega er síðar sprautað í minni æðahnúta að æðaslit. Til þessa er notað lyfið polidocanol sem vökvi eða froða. Lyfið lokar þessum æðum. Langtímaárangur þessarar meðferðar er einstaklingsbundinn en aldrei alger og iðulega þarf að endurtaka sprautumeðferðina. Árangur: Langtímaárangur aðgerðarinnar byggir m.a. á umfangi og eðli sjúkdómsins og nákvæmu mati fyrir aðgerð með skoðun og ómskoðun. Reynt er að gera varanlega aðgerð en hafa ber í huga um er að ræða krónískan sjúkdóm og að grunn orsök hans er lítt þekkt og því aldrei hægt að útiloka að æðahnútar geti myndast á ný eða á öðrum stöðum með tíð og tíma. Endurkoma æðahnúta eftir bestu mögulegu meðferð er algeng þegar til lengri tíma er litið. Vinna: Fjarvistir frá vinnu eru einstaklingsbundnar, háðar umfangi aðgerðar og starfi hvers og eins. Ekki er óeðlilegt að vera frá vinnu nokkra daga eftir aðgerðina og lengur í undantekningartilfellum. Vottorð vegna vinnu eru gefin út við endurkomu.
Vinsamlegast tilkynnið forföll til Skurðstofunnar (s. 553-2040) hið fyrsta. Reynt er að standa við tímasetningu aðgerðar eins og frekast er unnt. Sjúklingar verða þó ætíð að vera við því búnir að
aðgerðartíminn hnikist til eða frá á fyrirhuguðum aðgerðardegi. Sýnið þolinmæði.
Aðgerðartími: …………………………. daginn …………/………….201…….kl..……. : ……….. ©Stefán E. Matthíasson apríl 2015
Skoða upprunalega síðu og myndir
