Fyrir aðgerð
Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.
Síða 2 í PDF · síða 1 úr upprunaskjali
Stefán E. Matthíasson dr. med. Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma Lágmúla 5, 2. hæð 108-Reykjavík, Sími: 590 9200, www.laekning.is 1. hæð til vinstri,Sími: 553 20 40
Aðgerð á endaþarmi - gyllinæð ofl.
Gyllinæð - Fræðsluefni Undirbúningur:
- Taka Sorbítól (fæst í apótekum án lyfseðils) í 10-15 ml x2 í 2 daga fyrir aðgerð
- Fasta 6 klst. fyrir aðgerð. Vanalega frá miðnætti fyrir aðgerð. (Ekki borða fasta fæðu eða drekka vökva)
- Sturta kvöldið fyrir aðgerð og að morgni aðgerðardags og þvottur með venjulegri sápu
- Microlax hægðalyf (fæst án lyfseðils í apóteki) ein túba í endaþarm kvöldið fyrir aðgerð og aftur aðgerðardagsmorgun
- Forðast notkun blóðþynnandi lyfja s.s. acetylsalesylsýru (magnýl, kódimagnýl, hjartamagnýl ofl.) og allra bólgueyðandi lyfja (t.d. Ibúfen, Ibumetin, Indocit, Naprox, Voltaren, Vóstar) a.m.k. 5 daga fyrir aðgerðina. Þeir sem nota lyfið Kóvar (Waran/Dicumarol) þurfa að öllu jöfnu að hætta töku þess 5 dögum fyrir aðgerð og fá sérstakar leiðbeiningar þar um. Lýsi og Omega fitusýrur eru blóðþynnandi og ber af þeim sökum að hætta töku þeirra 5 dögum fyrir aðgerð.
- Þeir sjúklingar sem taka blóðþrýstingslækkandi lyf og/eða hjartalyf er bent á að taka þau að morgni aðgerðardags með sopa af vatni. Notkun getnaðarvarnar- eða tíðahvarfapillu þarf ekki að hætta nema að höfðu samráði við lækni
- Ráðlegt er að skilja verðmæti eftir heima. Skurðstofan ehf. ábyrgist ekki tap eða mögulegan skaða á persónulegum munum
- Við komu á skurðstofuna hittir þú skurð- og svæfingalækni sem skýra megin þætti aðgerðarinnar og ráðleggja um eftirmeðferð. Þú færðu slopp til að fara í og teiknað er á fætur. Allir sjúklingar verða að undirrita upplýst samþykki fyrir aðgerðina.
- Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum, plástri, joði ofl. er nauðsynlegt að það komi fram fyrir aðgerðina.
- Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taka þátt í kostnaði við aðgerðina fyrir þá sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Hlutur sjúklings ákvarðast af reglugerð þar um hverju sinni (lægra fyrir öryrkja/ellilífeyrisþega og handhafa afsláttarkorts SÍ). Greiðsla innheimtist fyrir aðgerðina. Greiða má með greiðslu- eða kreditkorti. Sjá nánar á www.sjukra.is. Eftir aðgerðina: Langflestar endaþarmsaðgerðir eru gerðar með staðdeyfingu í svæfingu eða með slakandi lyfi sem gefið er samtímis í æð. Að lokinni aðgerð færðu að jafna þig á vöknunardeildinni í 1-2 klst. og þegar þú treystir þér til og svæfingalæknir gefur leyfi til getur þú farið heim. Einhver verður að sækja þig. Sjúklingar teljast ekki ökuhæfir fyrr en daginn eftir svæfingu. Mataræði: Áríðandi er að halda hægðum mjúkum. Það fæst best með því að borða trefjaríkan mat (hveitiklíð, grænmeti og ávexti) og drekka vel af vatni. Fyrstu vikurnar eftir aðgerð getur verið nauðsynlegt að nota hægðalyf: Sorbítól 10-15ml á dag. Hreinlæti: Setböð eða sturta tvisvar á dag og eftir hægðir. Verkir: Fyrstu dagana má búast við óþægindum í aðgerðarsvæðinu. Ráðlegt er að nota verkjalyf ef þess er þörf og fást þau án lyfseðils í apótekum (Paratabs/Panodil 500 mg, 2 tbl fjórum sinnum daglega) eða með lyfseðli (Parkodín). Heit böð draga úr verkjum og kláða. Xylocain krem er deyfikrem sem má bera á endaþarminn x 2-3 daglega. Hreyfing: Öll hreyfing er góð. Forðastu langar setur. Hafðu hægt um þig fyrstu dagana en farðu samt allra þinna ferða en forðast ber þó mikið álag. Fylgikvillar: Eðlilegt er að smávægilegt blóð og slím komi eftir aðgerðina frá endaþarminum. Slímhúðin er skilin eftir opin og grær á 1-3 vikum. Forðast ber hægðatregðu og mikilvægt er að halda hægðum reglulegum og mjúkum uns sár grær. Sýkingar geta átt sér stað sem lýsir sér með óeðlilegum verkjum og hita. Við stærri blæðingu eða grun um sýkingu skaltu hafa samband við lækni. Vinna: Fjarvistir frá vinnu eru einstaklingsbundnar, háðar umfangi aðgerðar og starfi hvers og eins. Ekki er óeðlilegt að vera frá vinnu allt að viku eftir aðgerðina og lengur í einstaka tilfellum. Vottorð vegna vinnu eru gefin við endurkomu. Forföll: Vinsamlegast tilkynnið forföll til skurðstofunnar hið fyrsta þannig að hægt sé að kalla á aðra í þinn stað
Aðgerðartími: …………………………. daginn …………/………….201…….kl..……. : ……….. ©Stefán E. Matthíasson apríl 2015
Skoða upprunalega síðu og myndir
