Fara beint í efni
Undirbúningsefni

Tvíburabróðir (e. Sinus Pilonidalis)

Önnur skjöl úr safni

Fyrir aðgerð

Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.

Síða 2 í PDF · síða 1 úr upprunaskjali

Stefán E. Matthíasson dr. med. Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma Lágmúla 5, 2. hæð 108-Reykjavík, Sími: 590 9200 1. hæð til vinstri,Sími: 553 20 40

Tvíburabróðir (e. Sinus Pilonidalis)

Tvíburabróðir - Fræðsluefni Undirbúningur:

  • Fasta minnst 6 klst. fyrir aðgerð. Vanalega frá miðnætti fyrir aðgerð. (Ekki borða fasta fæðu eða drekka vökva)
  • Sturta kvöldið fyrir aðgerð og einnig að morgni aðgerðardags. Þvottur með venjulegri sápu. Ekki bursta húðina.
  • Af sýkingarvarástæðum á ekki raka aðgerðarsvæðið eða nota háreyðingakrem/vax á aðgerðarsvæðið viku fyrir aðgerðina. Ef raka þarf hár af aðgerðarsvæði er það gert í upphafi aðgerðar af starfsfólki á skurðstofu.
  • Engin krem eða mýkjandi efni á húð á að a við aðgerðarsvæðið á aðgerðardaginn.
  • Forðast notkun blóðþynnandi lyfja s.s. acetylsalesylsýru (magnýl, kódimagnýl, hjartamagnýl ofl.) og allra bólgueyðandi lyfja (t.d. Ibúfen, Ibumetin, Indocit, Naprox, Voltaren, Vóstar) a.m.k. 5 daga fyrir aðgerðina. Þeir sem nota lyfið Kóvar (Waran/Dicumarol) þurfa að öllu jöfnu að hætta töku þess 6 dögum fyrir aðgerð eða fá sérstakar leiðbeiningar þar um. Lýsi og Omega fitusýrur eru blóðþynnandi og því æskilegt að hætta neyslu þeirra viku fyrir aðgerð.
  • Þeir sjúklingar sem taka blóðþrýstingslækkandi lyf og/eða hjartalyf er bent á að taka þau að morgni aðgerðardags með sopa af vatni. Notkun getnaðarvarnar- eða tíðahvarfapillu þarf ekki að hætta nema að höfðu samráði við lækni
  • Ráðlegt er að skilja verðmæti eftir heima. Skurðstofan ehf ábyrgist ekki tap eða mögulegan skaða á persónulegum munum
  • Við komu á skurðstofuna hittir þú skurð- og svæfingalækni sem skýra megin þætti aðgerðarinnar og ráðleggja um eftirmeðferð. Þú færðu slopp til að fara í og teiknað er á fætur. Allir sjúklingar verða að undirrita upplýst samþykki fyrir aðgerðina.
  • Ef þú hefur þekkt ofnæmi fyrir lyfjum, plástri, joði ofl. er nauðsynlegt að það komi fram fyrir aðgerðina.
  • Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við aðgerðina fyrir þá sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Hlutur sjúklings er ákvarðaður af reglugerð hverju sinni (lægra fyrir öryrkja/ellilífeyrisþega og handhafa afsláttarkorts SÍ). Greiðsla innheimtist fyrir aðgerðina. Greiða má með greiðslu- eða kreditkorti. Sjá nánar á www.sjukra.is. Ekki er tekið við ávísunum eða gíróreikningar sendir eftir aðgerð. Eftir aðgerðina: Langflestar aðgerðirnar eru gerðar í svæfingu eða staðdeyfingu með slakandi lyfi sem gefið er samtímis í æð. Að lokinni aðgerð færðu að jafna þig á vöknunardeildinni í 1-2 klst. og þegar þú treystir þér til og svæfingalæknir gefur leyfi til getur þú farið heim. Einhver verður að sækja þig. Sjúklingar teljast ekki ökuhæfir fyrr en daginn eftir svæfingu. Verkir: Fyrstu dagana má búast við óþægindum í aðgerðarsvæðinu. Ráðlegt er að nota verkjalyf ef þess er þörf og fást þau án lyfseðils í apótekum (Paracetamól/Panodil 500 mg, 2 tbl fjórum sinnum daglega) eða með lyfseðli (Parkódin). Skurðsár: Skurðsár er iðulega skilið eftir opið og látið gróa upp. Í slíkum tilfellum þarf að skipta reglulega á sárinu. Síðar skola það með vatni og sápu reglulega (í sturtu). Hægt er að fá aðstoð á heilsugæslustöð með skiptingar á sárinu þegar frá líður. Það er þó nauðsynlegt að mæta til eftirlits hjá skurðlækni til skiptinga í fyrstu eftir aðgerð og síðar á viku eða tveggja vikna fresti til að fylgjast með að sárið grói á viðeigandi hátt. Fylgikvillar: Blæðing í skurðsárið og sýkingar geta átt sér stað. Við blæðingu kemur venjulega verkur og sárið bungar út og þegar frá líður kemur út mar í og fyrir neðan sárið. Þegar sárið er saumað er hætta á sýkingu nokkur. Einkenni sýkingar er verkur og eymsli í sárinu og etv. hiti. Ef grunur er um stærri blæðingu eða sýkingu skaltu hafa samband við lækni. Hafa ber í huga að þessi sjúkdómur er með nokkuð háa endurkomutíðni. Því er aldrei hægt að útiloka að viðkomandi muni ekki þurfa að gangast undir meðferð vegna sjúkdómsins á ný síðar á lífsleiðinni. Vinna: Fjarvistir frá vinnu eru einstaklingsbundnar, háðar umfangi aðgerðar og starfi hvers og eins. Ekki er óeðlilegt að vera frá vinnu frá einni til þriggja vikna eftir aðgerðina og lengur í einstaka tilfellum. Vottorð vegna vinnu eru gefin við endurkomu Forföll: Vinsamlegast tilkynnið forföll til skurðstofunnar hið fyrsta þannig að hægt sé að kalla á aðra í þinn stað

Aðgerðartími: …………………………. daginn …………/………….201…….kl..……. : ……….. ©Stefán E. Matthíasson apríl 2015

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 1 í skjalinu Tvíburabróðir (e. Sinus Pilonidalis)