Fara beint í efni
Undirbúningsefni

Leiðbeiningar fyrir skurðaðgerð í svæfingu eða slævingu

Undirbúningur

Fyrir aðgerð

Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.

Síða 2 í PDF · síða 1 úr upprunaskjali

Leiðbeiningar til sjúklinga og

foreldra barna sem fara í skurðaðgerð í svæfingu eða

slævingu

Undirbúningur

  • Eftirfarandi upplýsingar eru til þess að tryggja öryggi þitt eða barns þíns sem best og upplýsa um það hvers má vænta í tengslum við aðgerðina og svæfinguna.
  • Sjáðu til þess að einhver geti sótt þig og verið hjá þér fyrst um sinn eftir aðgerð.
  • Ef langt er heim, er gott að hafa aðstöðu til að vera á höfuðborgarsvæðinu fyrstu nóttina.
  • Þú mátt ekki keyra bíl daginn sem þú ert í aðgerð, hvort heldur sem þú færð svæfingu eða slævandi lyf.
  • Ekkert má borða í 6 klukkustundir fyrir aðgerð (oftast er best að borða ekki eftir miðnætti fyrir aðgerð).
  • Drekka má tæra, agnalausa og fitulausa vökva þar til 2 klukkustundum fyrir aðgerð (svo sem vatni, eplasafa (án aldinkjöts), hreint te, svart kaffi, Aqvarius, Powerade, Gatorade eða sambærilega drykki). Ekki má drekka mjólkurdrykki eða sambærilega drykki.
  • Ef tekin eru reglulega einhver lyf að morgni má taka þau með vatnsopa allt að klukkustund fyrir mætingu.
  • Sykursýkislyf í töfluformi skal ekki taka að morgni aðgerðardags. Insulin eða önnur sykursýkislyf í sprautuformi skv. ráðleggingum svæfingalæknis. Hringja í 590-9213 daginn fyrir aðgerð (kl. 8-15)
  • Venja er að taka öll önnur lyf sem tekin eru að staðaldri samkvæmt venju, sérstaklega astmalyf og blóðþrýstingslyf. Vanalega þarf að hætta öllum blóðþynnandi lyfjum (Asperin, Magnyl, Eliquis, Xarelto, Pradaxa, clobidogrel, Warfarin, Kóvar, Plavix…..) fyrir aðgerð, en aðeins í samráði við aðgerðalækni. Ath. Að ýmis bólgueyðandi lyf ss. Ibufen auka blæðingarhneigð. Sama á við um lýsi. Rétt að forðast þau 5 daga fyrir aðgerð.
  • Ekki nota tyggjó eða tóbak í 2 tíma fyrir aðgerð.
  • Fjarlægðu skartgripi, (sérstaklega tungulokka ) fyrir komu.
  • EMLA krem sem notað er til að deyfa fyrir stungur hjá börnum er hægt að fá í apótekum, og þarf að setja á 1 klukkustund fyrir komu á 2 til 3 staði (handabök og olnbogabót).
  • Einni klukkustund fyrir aðgerð er æskilegt að taka Parasupp eða Paratabs eða sambærileg lyf samkvæmt leiðbeiningum læknis

Hvað gerist aðgerðardaginn?

  • Á Skurðstofunni ehf í Lágmúla 5 gefur þú þig fram við móttökuritara. Þar færð þú eyðublað til að fylla í varðandi heilsufar, ef það hefur ekki verið gert áður.
  • Svæfingalæknir fer yfir heilsufar, föstu og gefur upplýsingar um svæfinguna/slævinguna.
  • Settur verður æðaleggur og oftast er svæft með lyfjum í æð. Börn eru ýmist svæfð með grímu sem sett er yfir vit barnsins eða með lyfjum sem eru gefin í æðalegg og fer það eftir aldri og þyngd barna. Foreldri fylgir barni að jafnaði þar til að er sofnað.
  • Eftir aðgerðina liggur þú á bekk á vöknun þar sem fylgst er með þér þar til þú ert tilbúin(n) að fara heim, sem er venjulega eftir 1/2-2 klukkustundir. Ógleði og verkir geta komið eftir allar aðgerðir en reynt er að fyrirbyggja það og meðhöndla eftir því sem hægt er. Foreldrar eru með börnum sínum á vöknun. Heimsóknir eru almennt ekki leyfðar á vöknun og notkun farsíma er takmörkuð.
  • Eftir aðgerðina verður rætt við þig áður en þú ferð heim og gefnar ráðleggingar varðandi eftirmeðferð og endurkomu ef við á.

Ef vandamál koma upp: Sími Skurðstofunnar ehf er 590-9213 Í neyð er ávallt hringt í Neyðarlínu í 112. Ef vandamál koma upp síðar og ef þú nærð ekki í þinn lækni er hægt að leita til heilsugæslu, læknavaktar eða á bráðamóttökur sjúkrahúsa. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.laekning.is

Skurðstofan ehf Lágmúla 5, 108 Reykjavík s. 590-9213, skurdstofan@laekning.is, www.laekning.is

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 1 í skjalinu Leiðbeiningar fyrir skurðaðgerð í svæfingu eða slævingu