Fyrir aðgerð
Ekki reykja eða nota nikótínpúða 2 klst. fyrir aðgerð.
Síða 2 í PDF · síða 1 úr upprunaskjali
Ólafur M. Håkansson, læknir Lækning, Lágmúla 5, 108 Reykjavík s:590 9200, h:567-4690/864-4774/854-2271 omh@laekning.is, www.laekning.is 1. hæð til vinstri. s.553.2040
Útskaf frá legi og legspeglun
Upplýsingar fyrir sjúklinga
Útskaf frá legi er gamalgróin aðgerð og er framkvæmd til þess að kanna legslímuna og/eða leghálsinn. Oftast eru langvarandi, óreglulegar eða miklar blæðingar undanfari aðgerðarinnar, en einnig separ í legholi eða óljósar fyrirferðir eða að konan hefur haft blæðingar eftir tíðabrigði. Oft er nú bætt við þessa aðgerð svokallaðri legspeglun, þar sem farið er með sérstakan kíki upp í legið og það skoðað að innan. Með því móti er hægt að sjá breytingar á innra borði legsins og legslímunnar og því hægt að fjarlægja þær á mjög markvissan hátt. Undirbúningur fyrir aðgerð: Eins og fyrir flestar aðgerðir er nauðsynlegt að fasta í a.m.k. 8 klst. fyrir aðgerð ( vanalega frá miðnætti fyrir aðgerð), þegar beita þarf svæfingu. Þetta er gert til að ekki sé til staðar fæða í maga, sem gæti valdið uppköstum og erfiðum fylgikvillum. Nauðsynlegt er að allir sjúklingar virði föstuna. Mikilvægt er að vita hvort um er að ræða ofnæmi fyrir joði eða öðrum sótthreinsunarefnum. Þegar sjúklingar taka lyf að staðaldri getur verið nauðsynlegt að taka lyfið sama dag og aðgerðin er framkvæmd og þarf að ræða þá lyfjatöku við aðgerðarlækni eða svæfingarlækni fyrir aðgerð (helst nokkrum dögum) svo ekki verði misskilningur. Oftast mega sjúklingar taka inn sín föstu lyf með 1-2 sopum af vatni, en forðast skal alla mjólkurdrykki eða súra drykki. Rétt er einnig að fara í sturtu að morgni aðgerðardags. Framkvæmd aðgerðarinnar: Útskaf er framkvæmt í svæfingu. Við undirbúning fyrir aðgerðina eru leggöng sjúklings þvegin og sett er töng á leghálsinn til þess að draga fram legið. Leghálsinn er víkkaður út og síðan er legholið skoðað með kíki og allt eftir því hvað finnst við þá skoðun er ýmist beitt útskafi eða markvissu brottnámi á fyrirferð. Útskafið eða það sem fjarlægt er úr leginu eða leghálsinum er svo sent í vefjagreiningu. Eftir að hafa jafnað sig á vöknun eftir svæfinguna má sjúklingurinn fara heim. Áhætta við aðgerð: Áhætta við útskaf er lítið. Fylgikvillar eftir útskaf eru helst blæðing og hreinsun frá legi, sem ætti ekki að standa lengur en 4-6 daga. Komi illa lyktandi útferð eða standi blæðing lengur en að ofan greinir er nauðsynlegt að hafa samband við aðgerðalækni sem fyrst. Einnig ef sjúklingur fær hita eða líður á annan hátt óeðlilega miðað við það sem gert var. Einstaka sinnum hefur komið gat á legið, einkum hjá eldri konum eða ef um afbrigðilega legu legsins er að ræða. Þessi göt lokast yfirleitt strax og gróa á skömmum tíma og þarfnast ekki frekari meðhöndlunar. Vonast er til að þessar línur geti komið að gagni. Komi upp fylgikvillar eru sjúklingar hvattir til að hringja í eitthvað af ofantöldum númerum, til að ná sambandi við undirritaðan. Ólafur M. Håkansson, læknir
1
Skoða upprunalega síðu og myndir
