Mikilvægar upplýsingar um umhirðu og bata eftir aðgerð
Eftir töku á húðmeinum er í lagi að fara í létta sturtu daginn eftir aðgerð.
Gott er að leyfa hvíta plástrinum að vera fyrstu 4 dagana eftir aðgerð. Eftir það er í lagi að taka plástur af.
Mikilvægt: Brúnu plástrana/strimlana skal láta vera eftir og ekki taka þá af nema þeir losni nánast af sjálfu sér eða eru teknir í saumatöku á heilsugæslu.
Yfirleitt þarf að taka sauma eftir 7 daga.
Pantaður er tími á þinni heilsugæslu hjá hjúkrunarfræðingi í saumatöku.
Yfirleitt þarf að taka sauma eftir 7–10 daga.
Pantaður er tími á þinni heilsugæslu hjá hjúkrunarfræðingi í saumatöku.
Ef um húðágræðslu er að ræða þá eru saumar yfirleitt teknir eftir ca 7–8 daga hjá þeim lækni sem framkvæmdi aðgerðina.
Athugið: Við húðágræðslu er saumataka hjá lækni sem framkvæmdi aðgerðina, ekki á heilsugæslu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar um bata eftir aðgerð, ekki hika við að hafa samband.