Fara beint í efni
Fræðsluefni

Langvinnur höfuðverkur — fyrirbyggjandi ráð

Fræðsluefni

Síða 1 úr upprunaskjali

Aðferðir sem koma í veg fyrir langvinnan höfuðverk. Langvinnur höfuðverkur er verkur í höfði sem hefur verið viðvarandi í meira en 3 mánuði. Algengasta ástæða höfuðverkjar er spennuhöfuðverkur og síðan migrén eða aðrar sjaldgæfari ástæður. Get ég gert eitthvað svo mér líði betur? -Já það sem þú getur gert er:

1. Þekktu kveikjuvalda þína. Það er áhrifaríkast til að koma í veg fyrir

höfuðverk 2. Skráðu höfuðverkjardagbók til að læra inn á kveikjuvalda þína og

munstur þeirra 3. Ekki hunsa vægan höfuðverk. Meðhöndlun á vægum höfuðverk kemur

í veg fyrir slæman höfuðverk og einnig mígrén 4. Hafðu svefn á dagskránni. Breytingar í svefnmunstri geta valdið

höfuðverk. Nægilegur svefn er því mikilvægur 5. Streita og spenna eru 2 helstu kveikjuvaldar höfuðverks

a. Skipuleggðu þig og ekki hætta við það sem þarf að gera b. Nýttu þér streitustjórnunarnámskeið eða einstaklingsmeðferð c. Regluleg þolþjálfun og ganga minnkar streitu d. Andaðu djúpt eða gerðu slökunaræfingar e. Viðhaltu jafnvægi á milli vinnu og skemmtunar f. Koffín er eldsneyti fyrir streitu og spennu. Notaðu það viturlega g. Ef þunglyndi eða kvíði eru til staðar, leitaðu þá hjálpar 6. Minnkaðu álag og spennu á hálsi

a. Sofðu á baki eða hlið þannig að hryggurinn er beinn b. Stilltu vinnustöð þína rétt. Skoðaðu þætti eins og skjá, lyklaborð,

stólastillingu, bakstuðning og handfrjálsan búnað við síma c. Tvískipt gleraugu geta aukið álag á háls d. Yfirfarðu líkamsstöðu þína reglulega, sérstaklega ef vinnan

krefst þess að þú sért í sömu stöðu í lengri tíma. Hreyfðu þig og gerðu teygjur

7. Minnkaðu vöðvaspennu í kjálkum

a. Tennur eiga aldrei að snertast b. Tungan á að hvíla við efri góm og tennur að vera aðskildar

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 1 í skjalinu Langvinnur höfuðverkur — fyrirbyggjandi ráð

Síða 2 úr upprunaskjali

8. Álag á augu getur valdið höfuðverk eða gert hann verri hjá viðkvæmum

einstakingi 9. Minnkaðu spennu í höfuði. Nuddaðu hársvörð og andlit daglega í sturtu

10. Farðu yfir líkamann. Skoðaðu spennu í hálsi og kjálkum á 15 mín. fresti.

Til þess má nota minnismiða, klukku eða tölvuprógram 11. Taktu oft hlé. Á klst. fresti er rétt að teygja á hálsi eða kjálka og anda

djúpt 5-10 sinnum. Hlé í 2 mín eykur framleiðni og minnkar spennu 12. Þekktu kveikjuvalda matar og hafðu stjórn á þeim sem hafa mest

neikvæð áhrif 13. Borðaðu reglulega og taktu hádegishlé þó það sé bara í 15mín. 14. Minnkaðu eða hættu koffínnotkun. Ef þú færð fráhvarfshöfuðverk,

minnkaðu þá koffínnotkun smám saman eða með hjálp fagfólks 15. Lyfjahöfuðverkur. Mundu að verkjalyfjanotkun oftar en 2-3/vika getur

valdið lyfjahöfuðverk sem truflar meðferðarmöguleika á höfuðverk 16. Notaðu hita eða kulda. Hiti auðveldar slökun og teygjur á meðan kuldi

getur minnkað verki 17. Fylgdu alltaf ráðleggingum um lyfjatöku 18. Skyndileg versnun eða breyting á höfuðverk getur einstaka sinnum

verið hættuleg. Ef miklar breytingar verða á einkennum eða höfuðverkjamunstri leitaðu þá hjálpar 19. Gerðu sérstaka meðferðaráætlun fyrir hverja tegund höfuðverks Ólöf H Bjarnadóttir, tauga- og endurhæfingarlæknir, des 2015. Byggt á upplýsingum frá University of Minnesota. Prevention of Chronic Pain: A human Systems Approach.

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 2 í skjalinu Langvinnur höfuðverkur — fyrirbyggjandi ráð