Fara beint í efni
Fræðsluefni

Teygjusokkar — Þrýstingssokkar

Fræðsluefni

Síða 1 úr upprunaskjali

SEM lækningar slf. Stefán E. Matthíasson dr. med. Greining og meðferð skurð- og æðasjúkdóma Lágmúla 5, 2. hæð, 108-Reykjavík, Sími: 590 9200, www.laekning.is

Teygjusokkar - Þrýstingssokkar Teygjusokkar eru notaðir við mismunandi sjúkdómsástand í ganglimum og efri útlimum. Teygjusokkar eru áhrifaríkir við meðferð mismunandi sjúkdóma svo og til að fyrirbyggja sjúklegt ástand. Mikilvægt er að notast sé við þá sokka sem hæfa hverjum einstaklingi m.t.t. notagildis og tilgangs. Teygjusokkar eru gerðir úr teygjanlegum þræði eða þar sem gúmmí hefur verið bætt í vefnaðinn. Hér að neðan er gefið yfirlit yfir helstu efnisflokka og grundvallaratriði við val á teygjusokkum. Einfaldast er að skipta teygjusokkum í tvo megin flokka:

  • Stuðningssokka
  • Þrýstingssokka Teygjusokkar eru notaðir við mismunandi aðstæður. Almennt stuðlar notkunin að því að hraða umsetningu blóðs í útlimnum: Almennar ábendingar:
  • Þreyta, pirringur í fótum
  • Bjúgtilhneiging án staðfests undirliggjandi sjúkdóms Fyrirbyggjandi ábendingar:
  • Fyrirbyggjandi fyrir blóðtappamyndun Við staðfesta sjúkdóma:
  • Æðahnúta
  • Aðra bláæðasjúkdóma
  • Sogæðabjúg
  • Eftir blóðtappa í bláæðum
  • Eftir brunaskaða á útlimum

Frábendingar Sjúklingar með staðfestan útæðasjúkdóm (æðakölkun) og ýmis önnur æðaheilkenni eiga ekki

að nota þrýstingssokka nema að höfðu samráði við sinn lækni. Notkun stuðningssokka er

yfirleitt vandalaus. Teygjusokkar veita mis mikið aðhald. Þetta aðhald endurspeglar þann aðhaldsþrýsting sem sokkarnir veita. Aðhaldsþrýstingurinn er mældur í mmHg ( mm kvikasilfurs) eða kPa (kíló Pascal). Teygjusokkar eru yfirleitt seldir í neðangreindum aðhaldsþrýstingsflokkum:

  • Stuðningssokkar (yfirleitt bara upp að hné) Yfirlitt án mælinga á útlim eða einungis getið skóstærðar.
  • 8-15 mmHg (vægt aðhald)
  • 8-20 mmHg (meira aðhald)
  • Þrýstingssokkar (mismunandi staðlaðar stærðir á lager verslana Hér þarf að ávísa mismunandi þrýstingsflokkum eða í mmHg miðað við notkun. Mæla þarf ummál ökkla/kálfa/læris þannig að sokkurinn passi viðkomandi.
  • Þrýstingsokkar (sérsaumaðir eftir máli) Flokkun notuð af nokkrum framleiðendum fyrir sérsaumaða (e.custom made) sokka

Teygjusokkar - Síða 1 af 3 Fræðsluefni þetta er eingöngu til nota fyrir sjúklinga SEM lækninga slf

©Stefán E. Matthíasson janúar 2010

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 1 í skjalinu Teygjusokkar — Þrýstingssokkar

Síða 2 úr upprunaskjali

2

Klass I-IV – Ccl 1-4 flokkun Ccl er merking fyrir staðlaða framleiðslu sem gefur ákveðinn aðhaldsþrýsting. Hér á landi er vanalega talað “Klass I-IV” sokkar. Nafngiftin höfðar til þrepaþrýstings eiginleika sokka. Ætíð er miðað við útgangspunkt við ökkla sem 100%. Þetta samsvarar 50-80% aðhaldsþrýstingi á kálfa og 20-50% aðhaldsþrýstingi á læri. Því miður eru Ccl staðlar milli landa og heimsálfa ekki þeir sömu og framleiðsla frá þessum löndum ekki sambærileg.

Því er mikilvægt að nota beinar aðhaldsþrýstiölur (mmHg) samhliða Klass kerfinu þegar ávísað

er á sokka til ljóst sé hvað viðkomandi eigi að versla.

Taflan er breið. Hægt er að fletta henni til hliðar til að sjá alla dálka.

Staðlar og ábendingar fyrir þrepaþrýstingssokka
Evrópu staðall / European standardBreskur staðall / British UK standardBNA staðall / USA StandardÁbendingar fyrir vali sokka*
Ccl 1
Lágur aðhaldsþrýstingur
18 – 21 mm Hg
(2,4 - 2,8 kPa)
Ccl 1
Lágur aðhaldsþrýstingur
15 – 20 mm Hg
(2,0 - 2,7 kPa)
  • Þreyta og pirringur
  • Byrjandi æðahnútar án bjúgs
  • Æðahnútar á meðgöngu
  • Fyrirbyggja blóðsega í bláæðum
Ccl 2
Miðlungs aðhaldsþrýstingur
23 – 32 mm Hg
(3,1 - 4,3 kPa)
ccl 1
20-30 mm Hg
(2,7 - 4,0 kPa)
Ccl 2
Miðlungs aðhaldsþrýstingur
20 – 30 mm Hg
(2,7 – 4,0 kPa)
  • Einkennagefandi sjúkdómur: Æðahnútar með bjúgtilhneigingu
  • Bjúgtilhneiging eftir slys/áverka
  • Bláæðabólga
  • Eftir meðferð vegna æðaslits
  • Eftir æðahnútaaðgerð
  • Miklir æðahnútar á meðgöngu
Ccl 3
Hár aðhaldsþrýstingur
34 – 46 mm Hg
(4,5 - 6,1 kPa)
ccl 2
30- 40 mm Hg
(4,0 – 5,3 kPa)
Ccl 3
Hár aðhaldsþrýstingur
30 – 40 mm Hg
(4,0 – 5,3 kPa)
  • Veruleg bjúgtilhneiging
  • Æðahnútar eftir blóðtappa
  • Húðbreytingar vegna bláæðasjúkdóms
  • Til að fyrirbyggja endurtekin bláæðasár
Ccl 4
Mjög hár aðhaldsþrýstingur
> 49 mm Hg
(> 6,5 kPa)
Ccl 4
Mjög hár aðhaldsþrýstingur
> 49 mm Hg
(> 6,5 kPa)
  • Sogæðabjúgur
  • Elephantiasis

*Leiðbeiningar en frávik geta verið umtalsverð milli einstaklinga

1 kPa = 7,5 mmHg og 1 mmHg = 0,133 KPa Þrýstingsokkar eru framleiddir í þrem megin lengdum. Innan hvers flokks eru iðulega mismunandi lengdir eftir framleiðendum (S, M, L):

  • Upp að hné (e.knee-high). Kóði á umbúðum: AD
  • Upp á læri (e.thigh-high). Kóði á umbúðum: AG
  • Sokkabuxur (e.pantyhose). Kóði á umbúðum: AT Algengar utanáskriftir Á umbúðir sokka eru iðulega tilgreindar mismunandi ábendingar sem kunna að vera framandi fyrir almenning en eru hugsaðar af framleiðendum til að vera leiðbeinandi fyrir kaupandann. Hvað þýða þessar utanáskriftir?
  • Anti-embolism Fyrirbyggjandi fyrir blóðsegamyndun. Vanalega eftir skurðaðgerðir eða við langvarandi legur/kyrrsetur í kjölfar sjúkdóma eða slysa. Einnig fyrir þá sem áður hafa fengið blóðtappa í bláæðar og eru í aukinni hættu á að fá blóðtappa á ný.

Teygjusokkar - Síða 2 af 3 Fræðsluefni þetta er eingöngu til nota fyrir sjúklinga SEM lækninga slf. ©Stefán E. Matthíasson janúar 2010

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 2 í skjalinu Teygjusokkar — Þrýstingssokkar

Síða 3 úr upprunaskjali

3

  • Custom Sérsaumaðir eftir máli fyrir hvern einstakling.
  • Circular Knit Saumlausir sokkar sem hafa þann kostað vera útlitlega betri en með saum.
  • Flat Knit Sokkar með saum í. Þetta eru sokkar sem eru vanalega sérsniðnir eða í sérstærðum sem saumalausir sokkar ráða ekki við. Útlitslega heldur lakari en saumalausir. Iðulega notaðir við hærri þrýsting.
  • Silver Sokkar ofnir með silfurþræði. Silfur hefur þann kost að hefta vöxt örvera. Þessir sokkar iðulega notaðir þar sem um vessandi sár eða sogæðabjúg er að ræða og sýkingarhætta meiri en ella.
  • Lymphedema Sokkar ætlaðir til notkunar við sogæðasjúkdóma og bjúg af völdum þess. Þessir sokkar eru iðulega með háum aðhaldsþrýstingi og einungis ætlaðir við staðfestan sogæðabjúg.
  • Support Stuðningssokkar sem eru iðulega seldir undir nafninu “flugsokkar eða ferðasokkar”. Veita stuðning með lágum aðhaldsþrýstingi. Seldir beint án sértækra mælinga. Þó stundum miðað við skóstærð. Fást hjá sumum framleiðendum í mismunandi lengdum (S, M, L). Stuðningssokkar eru vanalega bara upp að hné.

Hjálpartæki

Eldri einstaklingar eða hreyfihamlaðir eiga iðulega erfitt með að komast í teygjusokka. Til eru sokkaífærur sem auðvelda þetta.

Sjúkratyggingar Íslands

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða teygjusokka (70% af verði) við ákveðið sjúkdómsástand og ífærur (100% af verði) ef þeirra er þörf (hámark er þó á greiðslum). Framvísa þarf í hjálpartækjabeiðni frá viðkomandi lækni til SÍ. Reglur SÍ eru eftirfarandi: Reglugerð nr. 460/2003 um styrki TR vegna hjálpartækja með síðari breytingum 0406 Hjálpartæki við blóðrásarmeðferð: Aðeins er greitt fyrir þrýstisokka/þrýstibúnað vegna bruna og langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála eða langvarandi og mikillar bjúgsöfnunar vegna lömunar. Fyrir börn í vexti er þrýstibúnaður 040606 greiddur 90%, en fyrir aðra 70%. Vegna afleiðinga slysa sem eru bótaskyld hjá TR er þessi búnaður greiddur 100. 04 06 06 Þrýstisokkar/þrýstibúnaður fyrir handleggi, fætur og bol 70/90/100% 09 09 03 Sokkaífærur 100%

Nokkrir framleiðendur

Tegund sokka Framleiðandi Umboð á Íslandi Medi® www.medi.de www.stod.is

Venotrain® www.bauerfeind.com www.eirberg.is Jobst® www.jobst.com www.icepharma.is

Sigvaris® www.sigvaris.com ?

©SEM jan 2010

Teygjusokkar - Síða 3 af 3 Fræðsluefni þetta er eingöngu til nota fyrir sjúklinga SEM lækninga slf. ©Stefán E. Matthíasson janúar 2010

Skoða upprunalega síðu og myndirUpprunaleg síða 3 í skjalinu Teygjusokkar — Þrýstingssokkar